|
Steinunn Birna Ragnarsdóttir Píanó Steinunn Birna fćddist í Reykjavík og stundađi nám viđ Tónlistarskólann í Reykjavík. Ţađan lauk hún píanókennaraprófi áriđ 1979 og einleikaraprófi tveimur árum síđar. Kennari hennar var Árni Kristjánsson. Steinunn lauk meistaragráđu frá New England Conservatory of Music í Boston, USA, áriđ 1987 undir handleiđslu Leonards Shures.
Steinunn starfađi um tíma á Spáni og kom ţar fram sem einleikari og međ ýmsum kammerhópum. Hún hefur hlotiđ ýmiss verđlaun og viđurkenningar fyrir leik sinn og hefur komiđ fram á tónleikum í Lettlandi, Sviss, Ţýskalandi, Englandi, Frakklandi, Fćreyjum, Bandaríkjunum og í Litháen, ţar sem hún kom fram sem einleikari ásamt St. Christophor hljómsveitinni á Alma Mater tónlistarhátíđinni í Vilnius áriđ 2000. Steinunn lék einnig nýveriđ á tveimur tónlistarhátíđum í Vilnius og Kleipéda í Litháen. Hún kemur fram árlega á fjölmörgum tónleikum , bćđi sem einleikari og sem međleikari. Međal ţeirra einleiksverka sem hún hefur leikiđ međ Sinfóníuhljómsveit Íslands eru píanókonsert Edvards Griegs og Slátta eftir Jórunni Viđar, en hvort tveggja hefur veriđ gefiđ út á geislaplötu međ leik hennar. Hún hefur gert margar ađrar geislaplötur, diskurinn ţeirra Bryndísar Höllu Gylfadóttur hlaut Íslensku tónlistarverđlaunin áriđ 1998. Steinunn Birna starfar viđ tónlistarflutning og viđ Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún er stofnandi og stjórnandi Reykholtshátíđar, sem haldin er síđustu vikuna í júlí ár hvert. Nćsta haust mun hún leika einleik ásamt hljómsveitinni Virtuosi di Praga í Rudolfinum salnum í Prag og ásamt St. Christophor hljómsveitinni í Vilnius. |