|
"Óhætt er að fullyrða að tónleikarnir hafi verið glæstur endir á vandaðri hátíð og ætti listrænn stjórnandi hennar að íhuga að stækka hana á einhvern hátt" (Mbl. Jónas Sen- Lokatónleikar 2006) "Sónatan í e-moll í flutningi Auðar Hafsteinsdóttur og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur stjórnanda hátíðarinnar, var himnesk; túlkunin var blæbrigðarík og tilfinningaþrungin. ......Sömu sögu er að segja um strengjadúó í G-dúr í flutningi þeirra Auðar og Þórunnar Óskar Marinósdóttur. Hafi ég ekki sagt það áður þá segi ég það núna: Þær Auður og Þórunn Ósk eru með bestu strengjaleikurum sem við eigum. Leikur þeirra var frábær, þetta viðkvæma verk var sérlega fallegt í meðförum þeirra og útkoman einsatklega hrífandi. Bravó!" (Mbl. Jónas Sen- Mozart tónleikar 2006) "Tríóið spilaði eins og einn maður, en því verður maður ekki oft vitni að......það var eins og tónlistin yrði til á staðnum, svo eðlilegur var hljóðfæraleikurinn. Þessi ferskleiki glataðist aldrei" (Mbl. Jónas Sen- tónleikar Trio Polskie 2006) "Ég man t.d. ekki eftir að hafa upplifað lagið ;Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson á þennan hátt; það var tilfinningaþrungið og styrkleikajafnvægið á milli raddar og píanós svo vel ígrundaður að unun var á að hlýða. Diddú er skemmtikraftur af Guðs náð en fór þó ákaflega vel með lögin og söng af viðeigandi ástríðu. Steinunn spilaði líka af skáldlegri dýpt." (Mbl. Jónas Sen- söngtónleikar 2006) "Listræn opinberun.Túlkun Donald Kaasch á íslensku lögunum var svo full af sannfæringarkrafti, svo ástríðuþrungin og glæsileg að fólk æpti af hrifningu. Mér leið sjálfum eins og ég væri að heyra þessi lög í fyrsta sinn og varð alveg gáttaður. Ekki lítinn þátt átti vandaður og litríkur píanóleikur Steinunnar Birnu í þessum listræna viðburði en hann var svo tær, en að sama skapi svo hlýlegur að maður gleymdi stund og stað hvað eftir annað. Framistaða hennar var meistaraleg; píanóleikurinn magnaði upp sönginn og ljáði honum vængi- stóra vængi." (Mbl Jónas Sen- söngtónleikar 2005) " Flutningurinn var svo stórfenglegur að á tímabili hélt ég að einhver hefði sett eitthvað í matinn minn.Gat þetta verið? Jú það gat verið- þetta er það sem hægt er að upplifa þegar fagmenn á heimsmælikvarða eru á hverjum stað. Músikin var svo skemmtileg í þessari líflegu túlkun og maður gleymdi sér gersamlega; persónulega fæ ég ekki séð hvernig hægt væri að spila Haydn betur." (Mbl, Jónas Sen- tónleikar Brindisi tríósins 2005) "En svona guðdómleg tónlist er harla lítils virði ef hún er ekki almennilega flutt. Upplifunin veltur á hljóðfæraleikurunum, eru þeir samstíga? Er túlkun þeirra á anda Schuberts? Ná þeir að fanga hið ósegjanlega í tónlistinni? Ég held að á lokatónleikum í Reykholti um helgina hljóti svarið við öllum þessum spurningum að vera jákvætt" (Mbl. Jónas Sen- lokatónleikar 2005) "Þetta voru ótrúlegir tónleikar. Það er ekki oft að maður lokar augunum og gefur sig tónlistarsælunni á vald en það gerðist núna. Þetta var frábær stund og með bestu kammertónleikum sem ég hef farið á." (Mbl. Jónas Sen- 2004) "Það er reisn yfir Reykholtshátíð. Góð tónlist í flutningi okkar bestu tónlistarmanna og frábærra erlendra gesta eru aðalsmerki hátíðarinnar og efnisskrá tónleikana er fjölbreytt. Það eru framúrskarandi listamenn og góð tónlist á Reykholtshátíð sem er í listrænu öndvegi meðal tónlistarhátíða landsins " (Mbl Bergþóra Jónsdóttir - 2003) |