top of page

Berglind Stefánsdóttir

Berglind Stefánsdóttir steig sín fyrstu skref í tónlistarnámi við Tónlistarskóla Skagafjarðar. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem kennarar hennar voru Bernharður Wilkinson og Hallfríður Ólafsdóttir. Þaðan lauk hún blásarakennaraprófi vorið 2004 og starfar nú sem flautukennari við Skólahljómsveit Kópavogs og hefur einnig kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

 

Berglind hefur sótt einkatíma og námskeið erlendis, m.a. hjá William Bennett, Dennis Bouriakov, Philipe Bernold, Julien Beaudiment, Toke Lund Christiansen og Cecilie Løken.


Berglind er virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og hefur t.d. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Blásaraoktettinum Hnúkaþey, Blásarasveit Reykjavíkur, komið fram á Listahátíð í Reykjavík, Myrkum-  og Norrænum músíkdögum, Reykholtshátíð og sumartónleikum á Gljúfrasteini, Hólum, Þingvallakirkju og í Skálholti. Hún er meðlimur í Íslenska flautukórnum sem kemur reglulega fram á tónleikum og má þar á meðal nefna tónleika á alþjóðlegri flauturáðstefnu í New York sumarið 2009 og á flauturáðstefnu ítölsku flautuakademíunnar í Róm árið 2015.

Berglind_PR_Mynd.jpg
bottom of page