top of page

Helga Þóra Björgvinsdóttir

Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðluleikari, útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands vorið 2004 þar sem kennarar hennar voru Guðný Guðmundsdóttir og Auður Hafsteinsdóttir. Árið 2007 þreytti hún diplómapróf frá Listaháskólanum í Berlín (UdK Berlin) og hlaut hæstu mögulega einkunn en þar lærði hún hjá Isabelle Faust og kammertónlist hjá Artemis kvartettinum. Hún lauk meistaraprófi vorið 2013 frá Konunglega tónlistarháskólanum í Brussel þar sem hún stundaði nám hjá Kati Sebestyen.

Helga Þóra hefur sótt námskeið til Ítalíu, Frakklands og Þýskalands og hefur numið fiðluleik hjá m.a. Donald Weilerstein, Boris Garlitsky, Laurent Korcia, Stephen Clapp, Almitu Vamos, Suzanne Gessner og Svetlin Roussev.

Sem einleikari hefur Helga Þóra leikið þrívegis með Sinfóníuhljómsveit Íslands en einnig með Sinfóníuhljómsveit Unga fólksins og  Strengjasveitinni  Skark. Hún er meðlimur í Strokkvartettinum Sigga, Elektru Ensemble og Kammersveit Reykjavíkur. Einnig kennir hún við Menntaskólann í tónlist.

Helga Þóra hefur verið fastráðin hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2015.

Helga cv mynd.jpg
bottom of page