top of page

Kristinn Örn Kristinsson

Kristinn Örn Kristinsson hefur um áratugaskeið verið einn af reyndustu meðleikurum og kammertónlistarmönnum landsins. Hann stundaði píanónám við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskólann í Reykjavík, auk framhaldsnáms við Southern Illinois University og St. Louis Conservatory of Music í Bandaríkjunum. Meðal helstu kennara hans voru Philip Jenkins, Margrét Eiríksdóttir, Ruth Slenczynska og Joseph Kalichstein.

Auk umfangsmikils tónleikahalds hefur Kristinn Örn lagt mikið af mörkum til tónlistarmenntunar á Íslandi. Hann hefur starfað sem meðleikari við Söngskólann í Reykjavík, hefur kennt við Listaháskóla Íslands og starfar við Allegro Suzukitónlistarskólann, sem hann stofnaði ásamt fleirum. Hann hefur einnig sérhæft sig í Suzuki-aðferðinni, hlotið réttindi til að mennta Suzuki-píanókennara og gefið út bók um Suzuki-tónlistaruppeldi.

Sem flytjandi er Kristinn Örn þekktur fyrir næma tónlistartúlkun, fágaðan samleik og fjölbreytt samstarf með söngvurum og hljóðfæraleikurum. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika innanlands og erlendis, leikið inn á hljóðrit og tekið þátt í fjölmörgum útvarpsupptökum. Á ferli sínum hefur hann jafnframt hlotið starfslaun listamanna og gefið út geisladiskinn Píanólögin okkar.

Kristinn Örn_edited.jpg
bottom of page