top of page

Duo Stemma

Duo Stemma umbreytir tónleikum í ævintýri, þar sem tónlist, sögur, leikhústjáning og ótrúlegt safn hefðbundinna og heimagerðra hljóðfæra blandast saman. Duo Stemma samanstendur af víóluleikaranum Herdís Önnu Jónsdóttur og slagverksleikaranum Steef van Oosterhout, sem hafa bæði leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands til fjölda ára.

Duo Stemma er þekkt fyrir sköpunargáfu sína og lifandi sviðsframkomu og býður upp á þætti sem höfða til hlustenda á öllum aldri. Efnisskrá þeirra spannar allt frá íslenskum þjóðlögum til samtímaverka og flutningurinn er bæði hljóðkönnun og leikhúsupplifun. Dúóið hefur komið víða fram bæð á Íslandi og erlendis og flutt fjölbreytta efnisskrá, meðal annars nýjar tónsmíðar, samdar sérstaklega fyrir þau Herdísi Önnu og Steef. Þau leggja áherslu á að kynna börnum heim tónlistarinnar. Þau hafa haldið tónleika og fræðslusýningar í skólum, leikskólum, tónleikahúsum og hátíðum um allt land, sem og á Færeyjum, Grænlandi, Hollandi og Þýskalandi. Í viðurkenningu á mikilvægu framlagi sínu til barnamenningar á Íslandi fengu þau hin virtu IBBY-verðalaun árið 2008.

Með einstakri blöndu af snilld, forvitni og leikgleði skapar Duo Stemma eftirminnilegar tónlistarupplifanir sem hvetja áhorfendur til að uppgötva með því að leggja við hlustir og nota ímyndunaraflið.

duo-stemma-mynd.jpg
bottom of page