top of page

Guðbjartur Hákonarson

Guðbjartur Hákonarson er víóluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann starfaði áður í tvö ár við Konunglegu dönsku óperuhljómsveitina, þar sem hann lék bæði í fyrstu fiðlu og víóludeild. Hann hefur jafnframt komið fram með Dönsku útvarpshljómsveitinni og Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar.

 

Sem einleikari hefur Guðbjartur komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem sigurvegari Ungra Einleikara, auk þess að leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og hljómsveitum Jacobs School of Music. Hann hefur einnig gegnt stöðu konsertmeistara hjá Kammersveit Mallorca, Aurora Festival Orchestra og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Guðbjartur er víóluleikari í Resonans strengjakvartettinum, sem komst árið 2023 í úrslit P2 Kammermúsíkkeppninnar á vegum danska ríkisútvarpsins. Áður var hann meðlimur Von strengjakvartettsins í Bandaríkjunum, sem hlaut m.a. fyrsta sæti í Kuttner strengjakvartettkeppninni tvö ár í röð og annað sæti í WDAW keppninni. Kvartettinn var staðarkvartett við Jacobs School of Music og kom fram á hátíðum á borð við Banff, Heifetz Institute, Robert Mann String Quartet Institute og Aspen Music Festival. Guðbjartur lauk bakkalárnámi frá Jacobs School of Music við Indiana University og meistaraprófi frá Konunglega danska konservatoríinu í Kaupmannahöfn með hæstu einkunn. Meðal kennara hans voru Sigurbjörn Bernharðsson, Mauricio Fuks, Stanley Ritchie og Peters Herresthal. Hann hefur verið virkur í upptökuvinnu og spilað inn á fjölda verkefna, þar á meðal plötuna Poems með Viktori Orra og Álfheiði Erlu sem gefin var út af Deutsche Grammophon.

 

Guðbjartur leikur á fiðlu eftir Joseph Bassot frá 1790 og víólu eftir Hans Jóhannsson frá 2024.

image1.jpeg
bottom of page