Jóhann Kristinsson
Jóhann Kristinsson hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir söng sinn. Árið 2024 hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin sem Söngvari ársins í sígildri og samtímatónlist. Hann sigraði hina virtu söngkeppni „Stella Maris“, þar sem hann hlaut einnig dómnefndarverðlaun Wiener Musikverein, auk þess sem hann hlaut þriðja sæti og áheyrendaverðlaun alþjóðlegu söngkeppninnar „Das Lied“ í Heidelberg. Þar að auki komst hann í úrslit alþjóðlegu Robert Schumann keppninnar í Zwickau. Jóhann lauk meistaragráðu með hæstu einkunn frá Hanns Eisler tónlistarháskólanum í Berlín undir leiðsögn Scot Weir prófessors og naut þar einnig handleiðslu Thomas Quasthoff og Júliu Várady. Í kjölfarið varð hann meðlimur í óperustúdíói Ríkisóperunnar í Hamborg, þar sem hann kom fram í fjölmörgum uppfærslum. Sem konsertsöngvari hefur Jóhann starfað með virtum hljómsveitum og stjórnendum á borð við Manfred Honeck, Bertrand de Billy, Kent Nagano, Herbert Blomstedt og Cristian Măcelaru. Hann hljóðritaði Þýska sálumessu eftir Brahms með Philharmonisches Staatsorchester Hamburg undir stjórn Kent Nagano í Elbfílharmóníunni í Hamborg og kom hljómplatan út hjá BIS Records í fyrra. Jóhann hefur komið fram á tónlistarhátíðunum Heidelberger Frühling, Oxford Lieder Festival og Schubertiade Hohenems, og verið gestakennari í ljóðasöng við Pollini-tónlistarháskólann í Padúa á Ítalíu. Hann hefur einnig komið fram með hljómsveitum á borð við BRSO, Orchestre National du Capitole de Toulouse, Sinfóníuhljómsveit Sikileyjar, Sinfóníuhljómsveit Danmerkur, Oslo Philharmonic og Sænsku útvarpshljómsveitinni.


