top of page

Friday July 26th 8pm

OPNUNARTÓNLEIKAR
REYKHOLTSHÁTÍÐAR

Feðgarnir Jóhann Kristinsson og Kristinn Sigmundsson hafa um árabil skipað sér í fremstu röð íslenskra söngvara og markað djúp spor í tónlistarlífi landsins. Kristinn hefur um áratugaskeið átt glæsilegan feril sem bassasöngvari á alþjóðlegum vettvangi og komið fram á mörgum af virtustu óperu- og tónleikahúsum heims. Jóhann hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn fremsti barítónsöngvari sinnar kynslóðar og vakið athygli bæði á Íslandi og erlendis fyrir fjölbreytt verkefni á sviði óperu, kirkjutónlistar og ljóðasöngs.
 

Margir minnast enn tónleika feðganna á Reykholtshátíð sumarið 2020, þar sem söngur þeirra heillaði áheyrendur sem fylltu Reykholtskirkju þannig að fólk varð frá að hverfa. Það er því sérstakt fagnaðarefni að þeir skuli koma fram á opnunartónleikum Reykholtshátíðar 2026. Á tónleikunum flytja þeir vandaða og fjölbreytta efnisskrá ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara sem er einn af þekktustu meðleikurum og kammertónlistarmönnum hér á landi. 

Á tónleikunum munu einnig fjórir af strengjaleikurum hátíðarinnar flytja Quartettsatz D.703 eftir Franz Schubert (1797–1828). Verkið, sem er eitt af þekktustu kammerverkum Schuberts, var samið árið 1820 og markar mikilvægt skref í þróun hans sem tónskálds. Þótt strengjakvartettinn hafi aldrei verið fullgerður hefur þessi eini lokakafli öðlast sjálfstætt líf á tónleikapöllum fyrir kraftmikla framvindu, ríkulegt hljóðfærasamspil og einkennandi ljóðræna tjáningu Schuberts. Flytjendur eru Páll Palomares og Pétur Björnsson á fiðlu, Guðbjartur Hákonarson á víólu og Sigurgeir Agnarsson á selló.

Heildarefnisskrá tilkynnt síðar

Hlekkur á miðasölu:

RH26_OPNUNARTONL_707x1000px.jpg
bottom of page