top of page

Hildigunnur Einarsdóttir

Hildigunnur Einarsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík undir og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi Hildigunnur hefur einnig lokið B.A. prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Hildigunnur stjórnar Árkórnum í Reykjavík og Kvennakórnum Kötlu ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Hildigunnur kennir einnig söng við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann Domus Vox og hefur haldið námskeið í söng og skapandi tónlistarmiðlun. Hildigunnur hefur verið áberandi í kirkjutónlistarsenunni og sungið einsöngshlutverkin m.a. Í Messías og Judas Maccabeus eftir Händel, Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratoríuna eftir Bach og Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Hildigunnur hefur einnig sungið einsöng m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit norðurlands, Barokksveitinni Brák, Caput og Kammersveit Reykjavíkur og frumflutt fjölda verka m.a. eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, John Speight og Kolbein Bjarnason. Hildigunnur hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2023 fyrir söng ársins í flokknum sígild og samtímatónlist. 

HildigunnurEinars_Mar25_SunnaBen-8.jpg
bottom of page