Cantoque Ensemble
Cantoque Ensemble er 8-12 radda sönghópur sem inniheldur marga af bestu söngvurum landsins, bæði á sviði snemmtónlistar, nútímatónlistar og óperu. Meðlimir hópsins hafa margir hverjir sungið hlutverk á sviði Íslensku óperunnar og víðar, sungið með hljómsveitum víða um heim og hlotið ótvíræðar viðurkenningar fyrir söng sinn. Cantoque Ensemble var stofnað 2017 með því viðmiði að starfa með barokk-hljómsveitunum Höör Barock og Camerata Öresund þar sem þau voru með tónleika á Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð. Tónleikarnir hlutu tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónlistarviðburður ársins 2017. Árið eftir hélt Cantoque Ensemble ferna tónleika með útsetningum á íslenskum þjóðlögum og einnig söng hann kantötur eftir J. S. Bach á Sumartónleikum í Skálholti, með Bachsveitinni í Skálholti undir stjórn hins rómaða barokkstjórnanda Andreas Spering. Árið 2019 hófst samstarf Cantoque Ensemble við Steinar Loga Helgason. Fyrsta verkefnið með honum var að flytja Jóhannesarpassíu J. S. Bach ásamt barokkbandinu Brák. Árið eftir hélt hópurinn tvenna tónleika með nýrri íslenskri söngtónlist á Sumartónleikum í Skálholti og einnig á Sönghátíð í Hafnarborg undir stjórn Steinars Loga. Árið 2021 hélt Cantoque Ensemble svo samstarfi sínu við Camerata Öresund áfram, en einnig starfaði með þeim barokkhópurinn Ensemble Nylandia frá Svíþjóð. Verkefnið fór fram á Íslandi og í Danmörku, en einnig var tónleikum hópsins sjónvarpað á barokkhátíðinni BarokkiKuopio í Finnlandi. Þeir tónleikar hlutu einnig tilnefningu sem tónlistarviðburður ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Cantoque hélt tónleika á Myrkum músíkdögum í mars 2021 þar sem kórtónlist Jóns Nordal var í öndvegi. Tónleikarnir voru undir stjórn Steinars Loga Helgasonar og hlutu gríðargóðar viðtökur gagnrýnanda og tónleikagesta. Árið 2023 hélt Cantoque í tónleikaferð til Sviss þar sem hópurinn sameinaðist kórnum Ensemble Chæur3 og flutti verk eftir Frank Martin og Philippe Körper undir stjórn Abeliu Nordmann og mun það samstarf halda áfram á næstu misserum. Einnig hélt hópurinn vinnustofu um íslenska kórtónlist og þjóðlagaarfinn. Cantoque Ensemble hefur í nokkur ár haldið svonefnda portrett-tónleika á Myrkum músíkdögum þar sem kórtónlist íslenskra tónskálda er í forgrunni og þannig hefur tónlist Jóns Nordal, Þorkels Sigurbjörnssonar og Hjálmars H. Ragnarssonar verið flutt í Hallgrímskirkju undir stjórn Steinars Loga Helgasonar, við afar góðar viðtökur.
Framundan eru mörg spennandi verkefni hjá hópnum, þar má nefna samstarfsverkefni með Eistneska fílharmóníukammerkórnum og stjórnanda hans, Tõnu Kaljuste, nýja óratoríu eftir Högna Egilsson og stórt alþjóðlegt verkefni um ferðir Guðríðar Þorbjarnardóttur sem mun spanna árin 2027-2028.

CANTOQUE ENSEMBLE Á REYKHOLTSHÁTIÐ:
Sópran:
Hallveig Rúnarsdóttir
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Þórunn Vala Valdimarsdóttir
Alt:
Hildigunnur Einarsdóttir
Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Tenór:
Bragi Bergþórsson
Þorkell Helgi Sigfússon
Bassi:
Fjölnir Ólafsson
Hafsteinn Þórólfsson
Örn Ýmir Arason