Mathias Susaas Halvorsen
Mathias Halvorsen er norskur píanóleikari og tónskáld, búsettur í Reykjavík. Efnisskrá hans spannar allt frá hefðbundnum konsertum til tilraunatónlistar.
Árið 2024 var Mathias tilnefndur til Spellemannprisen fyrir hljóðritanir þar sem hann leikur píanókonserta fyrir vinstri hönd með Norsku útvarpshljómsveitinni undir stjórn Otto Tausk. Kammeróperuútgáfa hans og fiðluleikarans Mathieu van Bellen af La Bohème, útsett fyrir fiðlu, píanó og varpaðan texta, hlaut hástemmt lof í BBC Music Magazine og hefur tvíeykið síðan ferðast með nýjar uppfærslur á Toscu og Salome.
Mathias er listrænn stjórnandi PODIUM – Fartein Valen Internationale Musikkfest og stofnandi LightsOut, alþjóðlegs verkefnis sem heldur tónleika í algjöru myrkri—án ljósa, án truflana, með fulla áherslu á hljóð og nærveru. Hann vinnur einnig í þverfaglegum verkefnum. Nýjasta ópera hans, And Then There Were None byggir á sögu eftir Agöthu Christie og var frumflutt árið 2023. NRK lýsti henni sem „glæpsamlega áhrifamikilli“.
Halvorsen kafar oft ofan í vanmetna kima efnisskrárinnar. Hann uppgötvaði týndan fimmta píanókonsert Halfdan Cleve árið 2009 og frumflutti hann með Litháísku ríkissinfóníunni. Upptökuverkefni hans eru meðal annars The Well-Tempered Clavier á undirbúnu píanói, Sinding-sónötur með Magnus Boye Hansen, og On Goldberg and On Palestrina. Þá hefur hann komið fram á virtum tónleikastöðum eins og Philharmonie de Paris, Berliner Philharmonie, Elbphilharmonie Hamburg, Queen Elizabeth Hall í London og á hátíðum eins og Schleswig-Holstein Musik Festival, Brighton Festival, Meltdown (sýningarstjórn Yoko Ono), MOFO í Tasmaníu og Oranjewoud Festival í Hollandi.


