top of page

Laugardagur 25. júlí kl. 20

SÖNG- OG KAMMERTÓNLEIKAR
REYKHOLTSHÁTÍÐAR

Flytjendur:

Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Mathias Susaas Halvorsen, píanó

Pétur Björnsson, fiðla
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló

Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran og píanóleikarinn Mathias Susaas Halvorsen leiða fjölbreytta dagskrá þar sem rómantísk tónlist er í forgrunni. Á efnisskránni eru verk eftir þrjú af helstu tónskáldum 19. aldar, Johannes Brahms, Antonín Dvořák og Richard Strauss, sem hvert um sig túlka ást, söknuð og ljóðræna fegurð á sinn einstaka hátt.

Meðal verka kvöldsins eru Zwei Gesänge, op. 91, eftir Brahms fyrir mezzósópran, víólu og píanó – ein af innilegustu og persónulegustu tónsmíðum hans. Einnig verður flutt úrval úr Sígaunaljóðum Brahms auk Ástarljóða eftir Dvořák.

Á milli söngverkanna verður flutt Capriccio fyrir strengjasextett eftir Richard Strauss, sem hann samdi sem inngang að samnefndri óperu. Hér hljómar verkið í flutningi allra strengjaleikara hátíðarinnar.

Heildarefnisskrá tilkynnt síðar

Hlekkur á miðasölu:

RH26_SONGOGKAMMERTONL_707x1000px.jpg
SÍGILD TÓNLIST Í SÖGULEGU UMHVERFI  //  CLASSICAL MUSIC IN HISTORICAL SURROUNDINGS
  • Facebook
  • Instagram
HAFÐU SAMBAND:
bottom of page