top of page

Laugardagur 29. júlí kl. 13
Fyrirlestur á vegum Snorrastofu

FINGRAFÖR SÆMUNDAR FRÓÐA

Friðrik Erlingsson

Hverjar eru helstu vísbendingar um ritstörf Sæmundar Sigfússonar í Odda?

 

Fyrirlestur Friðriks Erlingssonar eru hugleiðingar áhugamanns um íslenskar miðaldir og þankar leikmanns um hið mögulega og ómögulega í lífi og starfi Sæmundar Sigfússonar, með áherslu á þau ritverk sem hann gæti hafa sett saman eða komið að, útfrá þeim tilvitnunum og heimildum sem tengjast nafni hans í miðaldatextum.

20140923-DSC_1304.jpg

Friðrik Erlingsson

skáld og handritshöfundur, er fæddur 4. mars 1962 í Reykjavík og útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1983. Fyrsta skáldsaga hans, Benjamín dúfa, hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1992 og Verðlaun Reykjavíkurborgar 1993. Friðrik hefur skrifað handrit að sjónvarps- og kvikmyndum og verið sjálfstæður handritaráðgjafi. Hann hefur kennt handritaskrif við Kvikmyndaskóla Íslands og veturinn 22-23 kennt handritafræði við Kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands. Friðrik skrifaði handrit og libretto (söngtexta) að óperunni Ragnheiði, sem Gunnar Þórðarson gerði tónlist við. Friðrik er Verkefnastjóri Oddafélagsins og kom, fyrir hönd félagsins, að þróun og undirbúningi að stofnun RÍM-verkefnis ríkisstjórnar Íslands: Ritmenning íslenskra miðalda. Með Oddafélaginu hefur Friðrik unnið að endurreisn menningar- og fræðaseturs í Odda.

bottom of page